27ágúst

I love my life.....

fyrirgefiði hvað ég hef verið löt við að blogga...maður bara var ekki að gera neitt nema vinna í sumar... en núna er skólinn byrjaður og þá fer maður sko að bloggaGlottandi
herðu við erum semsagt flutt í Kjalarsíðu og það er æðislegt..... við erum alveg rosalega ánægð hérna...Elfar er byrjaðu í Háskólanum og ég held bara áfram í VMA...... Nýlega fór Elfar í aðgerð á fótunum..... það var skorið í báðar fæturnar á honum... þannig að hann er búinn að vera í veikindaleyfi núna í 2 vikur...greyið...með 8 skurði....4 á hvorri löppÓákveðinn
við erum búin að vera svo heppin....ég á svo frábæra fjöskyldu sem hefur hjálpað mér svo mikið.... við vorum nebblega svo viss um að við ættum allt í búið.....og eitt kvöldið buðum við Gumma, Kristínu kærustu hans og Gunna.... við fengum ÆÐISLEGAR innflutningsgjafir frá þeim....frá Gumma og Kristínu fengum við 4 Rósendal (örugglega ekki rétt skrifað) skálar og Gunni gaf okkur æðislegan kertastjaka....anyway...við vorum með pasta og GEGGJAÐA sósu sem að Elfar gerði og hvítlauksbrauð.... svo bara lögðum við á borð og allt í lagi með það...en þá komumst við að því að eina skálin sem við áttum var STÓR BLEIK PLASTSKÁLHissa og EKKI nóg með það heldur áttum við EKKI AUSU í sósuna...þannig að við þurftum að nota DESILÍTRAMÁL til að nota í sósuna....ég skammaðist mín svo mikið....Skömmustulegur
svo í gær þá var ég hjá ömmu og afa í kaffi og þau voru búin að tala um einhvern kassa sem væri fullur af búsáhöldum sem að ég mætti endilega koma og kíkka á....þannig að ég bjóst við litlum kassa með ausum og sleifum og svoleiðis......alls ekki.....það voru 4 pottar, 1 panna, pískari, pastaskeið, sleif, upptakari, dósaopnari, 8 hnífar í tréstandi og skæri, skurðarbretti og ég hreinlega man ekki meira....shit þetta var svo mikið...og þau gáfu okkur það bara....ég var ENDALAUST ánægð.... svo ég fór með það heim og sýndi Elfari og allt í góðu...svo fer ég heim til pabba og mömmu þá kemur Pabbi með stóran kassa til mín og lætur mig fá....ég opna hann og þá er það......rauð.....æðislega nett....RYKSUGA.....ég var búin að drösla ryksugunni hennar mömmu hingað og moppunum hennar og læti.....shit hvað ég var ÁNÆGÐ..... og hún er sko æðisleg.....geggjað létt og nett....
þannig að ég er bara í skýjunum...alveg hreint....svo fórum við Kristín út að jogga í gærkvöldi og fórum svo heim til mín... hún á heima rétt hjá mér þannig að það er stutt að fara....og hún gaf okkur æðislega flott kerti á glerdisk og servéttur.....
svo keyptum við okkur LCD sjónvarp 37" ógeðslega flott....
við erum sátt...okkur líður vel, hraust...eigum æðislega fjölskyldu og frábæra vini....
en jæja ég er að pæla í að fara að horfa á sjónvarpið....
látum þetta gott heita í bili....góða skemmtun á AkureyrarvökunniHlæjandi
Hildur hamingjusama
ég kem svo bráðum með myndir af okkur og íbúðinni og svona....spes fyrir þig Telma mínKoss
27. ágúst 2008 klukkan 20:19
Hildur Ýr Sigþórsdóttir
1 athugasemd
10ágúst

11 dagar....

shit ég hreinlega get ekki beðið....það eru 12 dagar þangað til að við flytjum.... það verður næs...erum einmitt að fara í dag og kaupa okkur flatskjá til að hafa í stofunniHlæjandi svo erum við að fara til Dalvíkur í dag og ætlum að fara á súpukvöldið sem endar svo á Garðpartýi hjá Denna í kvöld...það verður reyndar gaman... kem með myndir af því eftir helgi....
fórum í sumarbústað við þingvallavatn seinustu helgi....massa bústaður.... það var reyndar bara næs sko....við gerðum HELLING.....fórum í golf...í fótbolta, vorum MIKIÐ í pottinum....borðuðum BARA góðan mat...skelltum okkur á Sellfoss og fórum í EDEN...það var æði.....alveg eins og mig minnti þegar ég fór þangað 6 ára skotta.... good times...
við komum svo heim á mánudaginn og erum núna búin að vera ein heima í rúma viku..mamma og pabbi eru á Tenerife....í 33 stiga hitaHissa mamma hringdi einmitt í mig í gær og var að telja upp allt það sem hún var búin að kaupa handa mér....shit hvað ég er spennt að fá þau heim...
svo er það bara að byrja að pakka í næstu viku...ég er að vinna alveg til 19 ágúst þannig að ég verð bara að pakka þess á milli sem ég vinn...ekki máliðGlottandi 
en jæja ætli við látum þetta ekki nægja í bili...ætla að klára að vinna og svo bara.....dallas city...here i comeHlæjandi
10. ágúst 2008 klukkan 18:39
Hildur Ýr Sigþórsdóttir
Engin athugasemd
23júlí

Miðvikudagurinn 23 Ágúst 2008

jæja núna fer að styttast í allt saman...skólinn fer að byrja, við fáum íbúðina og veturinn fer að koma.....
staðan er góð....Kristín sæta er að komin heim frá DK.....ég ætla að taka helgina með stæl.... ætla að taka mér frí á mánudaginn og þriðjudaginn.....er að vísu að fara á jarðarför á föstudaginn en eftir það þá verður þetta stællegt...  fer í stórafmæli á föstudagskvöldið...svo fer ég í skírn á laugardaginn og svo annað stórafmæli á laugardagskvöldið....alveg nóg að gera....um að gera að hafa bara gaman að þessu.....
svo er mín bara búin að vera róleg.....búin að vera ógeðslega dugleg að hreyfa mig....fór í vigtun í gær og var ROSALEGA ánægð.... svo er mín bara búin að sitja mikið útí sólinni að lesa og komin með lit og alles....Glottandi svo fer að styttast í að við förum í sumarbústaðinn.....það verður bara gaman...á einmitt eftir að vinna í 2 daga og fer svo í 4 daga frí, vinn í 4 daga og fer svo í 3 daga frí, vinn svo í 4 daga svo bara í venjulegt helgarfrí og svo vinn ég 5 daga og svo er ég hætt hér á heilsugæslustöðinniHissa því að skólin byrjar vikunni eftir það OG VIÐ FÁUM ÍBÚÐINA OKKARHlæjandi en ég á alveg eftir að sakna þess að mæta ekki hér í vinnu alla morgna....það er búið að vera rosalega gaman að vinna hérna.....
svo erum við stelpurnar að fara út að borða því að Telma okkar er að flytja til RVKGráta þannig að við ætlum að hittast og borða saman og gera eitthvað skemmtinlegt... ætla að vísu að fara til hennar á fiskidaginn mikla og gista þar og djamma....Brosandi það verður bara gaman.... og svo eftir það er það bara að pakka því sem að við eigum, fara í gegnum geymsluna heima hjá ma og pa, ná í dótið okkar sem að er á nokkrum stöðum hérna í bænumÓákveðinn og svo er það bara að flytja....ætlum einmitt að halda þarna DJÚSÍ innflutningspartý helgina eftir að við flytjum.....það verður magnað....það eru að vísu svo margir sem að ætla sér að koma að ég held að við verðum að stækka við okkurUllandi en þetta verður bara magnað...gott að vera í góðra vina hópiHlæjandi
svo eru mamma og pabbi að fara til Tenerife....þannig að ég verð ein heimaGlottandi og ætli maður geri ekki eitthvað þá.....nýta húsið....
en ég held að þetta sé allt sem að ég hef að segja....þetta er svona það sem að er búið að vera að gerast hjá mér og er á döfinni hjá mér......
og jú ég lenti á sjúkrahúsinu seinustu helgi...það var ekkert sérlega heppilegt...
en ég hef það ágætt núna.....það er það sem skiptir mestu...
núna ætla ég að skella mér í að klára að vinna og drífa mig heim í sólbað....
hafiði það sem allra best....
23. júlí 2008 klukkan 15:16
Hildur Ýr Sigþórsdóttir
2 athugasemdir
11júlí

Kominn föstudagur og sumarið að verða búið...

hvað finnst ykkur um það? sérstaklega þið sem eruð að fara í HA eða VMA? það eru bara 4 vikur eftir af sumrinu....skólin er að byrja bráðum...að vísu hlakka ég GEGGJAÐ til að fara í skólan aftur....en sumarið er bara farið...eða svo gott sem.... en það þýðir þá bara að það styttist í að við fáum íbúðina okkar og jólin fara að koma og svona...hehe alltaf byrja ég í júlí ágúst að tala um jólin...en vitiði að þau verða komin áður en við vitum af....
Ég er ekki búin að gera mikið í sumar....bara búin að vera að vinna síðan ég kláraði prófin og var svo að byrja í annari vinnu fyrir 3 vikum síðan...þannig að ég er semsagt að vinna á heilsugæslustöðinni frá 8-16 og fer svo að vinna hjá Rún eftir kl 16:00....það er rosalega fínt sko...bara gott að vinna eins og maður getur þangað til maður fer í skóla...en ég er svo bara að bíða eftir svörum um vetrarvinnu með skóla...
annars er ekkert á dagskrá..ég ætla að vera svo gáfuð að flýja Akureyri um verslunarmannahelginna og fara í sumarbústað með manninum mínum.... vá hvað ég hlakka til....bústaður með potti og gufu og alles....æji það var bara svo geggjað að sleppa við versló í fyrra að við ákváðum bara að gera það líka í ár....
Við hjúin skelltum okkur til rvk seinustu helgi og fórum að versla svona það helsta sem okkur vantar í búið...það var nú ekki mikið...matarstell, hnífapör, skáp undir sjónvarpið og potta og pönnur.... þetta keyptum við allt með léttum leik...og keyptum auk þess skrifborðsstól við skrifborðið sem við ætlum að kaupa í rúmfó á akureyri og ég náði meira að segja að kaupa mér slatta af fötum og skóm og svona..þannig að þetta var bara magnað....vorum bara í íbúð og næs....
ég er hreinlega ástfangin af lífinu í dag.... á hreint frábæra vini sem eru alltaf til staðar fyrir mig.... yndislega fjölskyldu og ástfangin upp fyrir haus af manninum mínum....er í góðri vinnu og það er bara allt gott...þarf ekki meira en þetta....
takk fyrir, love youKoss
Hildur Ýr Sigþórsdóttir
11. júlí 2008 klukkan 12:28
Hildur Ýr Sigþórsdóttir
1 athugasemd
27júní

Fólk sem starir.....

djöfull fer það í taugarnar á mér....ég þekki alveg fólk sem að starir....og það er ekkert að þessu fólki og kannski er það ekki að gera þetta viljandi en þetta er mjög óaðlaðandi eiginleiki í fari fólks....t.d. hef ég rekist á eina stelpu bæði útá götu og í vinnunni hennar og hún starir bara...og ef það kemur einhver nýr til að stara á, þá starir hún á þá manneskju....þetta er svo ömurlegt....að sitja bara og stara....
það er nebblega þannig að þegar fólk er svona þá heldur maður að þetta sé bara fáránlegt fólk og örugglega ömurlegt...svo er þetta bara besta skinn...en hins vegar getur þetta alveg verið ömurlegt lið...og þið vitið örugglega hvað mér finnst um þessa stelpu sem ég er ALLTAF að mæta...og ég veit ekki hvað þetta er....fyrst fór ég í vinnunna hennar og sá hana fyrst þar og þá starði hún...svo sáumst við aftur í búð eða eitthvað og hún starði....og svo vorum við Elfar að labba á Glerártorgi og hún var þar...og starði...djöfull er þetta pirrandi....
svo fórum við Elfar í golf í gær og þar var EINMITT...önnur stelpa sem er soltið gjörn á að stara.... FOKK HVAÐ ÉG ÞOLI EKKI ÞEGAR FÓLK STARIR!!!!!!!!!!!!!
Ég gæti sagt að ég væri svo fallega að auðvitað mundu allir vilja stara...en þið vitið að svoleiðis er það nú ekki, þetta er svona eins og fólk sem að þekkir mann ekkert....sé að dæma mann...og ég gef fólki ekki einu sinni færi á því....ég á nóg með það hvað ég dæmi sjálfan mig og ég þarf engan annan til þess skal ég ykkur segja....en nóg um leiðinlegt fólk sem starir....ég er farin í helgarfrí og er að fara á sálina á laugardaginn...sjáumst þar....

Hildur Ýr

27. júní 2008 klukkan 14:50
Hildur Ýr Sigþórsdóttir
Engin athugasemd
12júní

 

Bolla....ég er langt því frá að vera mjóna í dag...en kom on...
12. júní 2008 klukkan 23:35
Hildur Ýr Sigþórsdóttir
Engin athugasemd
12júní

engan kjaft Elva Dögg;)

ég er að fýla það....Dagbjört það er POTT ÞÉTT skímó á mánudaginn....shit...
djöfull verður það gaman....
en jæja ég er að reyna að koma niður..núna fer allt í gang....´
hérna er bloggið Dagbjört mínKoss
hlakka til að fá þig í bæinn.....og DJAMMA....
morgunm.
1 1/2 dl ab mjólk
30 gr brauð
15 gr smjör
25 gr ostur
1/2 banani

kaffi:
15 vínber

hádegi:
75 gr pasta
300 gr grænmeti

kaffi:
epli

kvöldmatur....
á eftir aðfá mér hann
12. júní 2008 klukkan 18:45
Hildur Ýr Sigþórsdóttir
1 athugasemd
23maí

dagur eitthvað....verð að komast að því....

ókei ég verð að halda áfram að blogga um það sem ég er að éta því þetta virðist ekki ganga nema að fá hrós frá ykkur...það er svo geggjað...þannig að ég vona að þið hafið ekki misst trúna á mér...
jæja ég ætla að vera samkvæm sjálfri mér...
morgunmatur:
30 gr brauð
25 gr feitur ostur
2 tsk smjör
1 1/2 dl ab mjólk

morgunkaffi:
1 epli
1/2 líter af vatni

hádegismatur:
3/4 í skyrdós
300 gr grænmeti
1/2 líter vatn

síðdegiskaffi:
1/2  líter af vatni

kvöldmatur:
2 pizzusneiðarÓákveðinn
1 glas coke light
ekkert grænmeti Öskrandi

kvöldkaffi:
1/2 líter af vatni
300 gr grænmetiHlæjandi

PLZ.....commentið...ég BIÐ YKKUR.....ég kemst ekki af án ykkar...
love you
Hildur ÝrKoss
23. maí 2008 klukkan 21:16
Hildur Ýr Sigþórsdóttir
7 athugasemdir
11maí

flash back....

ein af seinustu minningum mínum um mína fallegu Sigrúnu er þegar hún var alltaf að biðja mig um að taka gítarsólóið í I want to break free.... með loftgítar...hún gat hlegið endalaust að mér þegar ég gerði þetta. Þegar ég heyri þetta lag nú í dag hugsa ég alltaf til baka með miklum söknuði.... það koma dagar það sem að andinn í mér dregur mig niður, það eru svo margar minningar sem valda sársauka og vekja upp margar spuringar.....
vissi hún nákvæmlega hvað mér fannst um hana?
hvað ég elska hana mikið?
að þó við sögðumst ALLTAF ætla að hittast en gerðum það aldrei, vissi hún að hún var ein af mínum bestu og kærustu vinkonum?
kannski nær maður aldrei að jafna sig,kannski losna ég aldrei við samviskubitið sem er að naga mig um að hafa ekki lagt mig fram í að láta verð af því að hittast og vera saman....
en lífið verður víst að halda áfram...
Hildur Ýr
11. maí 2008 klukkan 01:23
Hildur Ýr Sigþórsdóttir
Engin athugasemd
09maí

kæruleysisblogg....dagur 19...FRÁBÆR dagur...

herðu dagurinn í dag fór ekki alveg eftir áætlun....ég drakk ekki alveg eins mikið vatn og ég átti að gera og borðaði ekki alveg nóg en það er alveg ástæða fyrir því....
byrjum samt á byrjun...ég vaknaði klukkan 06:50 í morgun og hellti uppá kaffi og fékk mér GÓÐAN morgunverð...
1 1/2 dl ab mjólk
30 gr brauð
2 tsk smjör
25 gr feitur ostur
125 ml appelsínusafi.

svo skellti ég mér í dönskupróf....prófið gekk vel en að komast í prófið var ekki eins auðvelt.. ég og Ragnar fórum í vitlausa stofu og byrjuðum 10 mín of seint á prófinu þannig að ég RÉTT náði að klára...en það bjargaðist....svo fór ég á fund Nínu á Heilsugæslustöðinni og hún tilkynnti mér það að ég ætti bara að byrja að vinna hjá þér á miðvikudaginn á næstu viku....Hlæjandi ég var ÓGEÐSLEGA ánægð... loksins komin með vinnu...ég var samt komin með 2 önnur vinnutilboð...frá Þelamörk og "Staðnum" niðrí bæ sem að ég varð svo bara að afþakka...fyndið að vera á taugum í HEILAN mánuð yfir því að fá ekki vinnu og svo koma bara þrjár vinnur BEINT uppí hendurnar á mér.... það hefur að vísu alltaf verið svoleiðis... mér hefur alltaf boðist eitthvað....
semsagt í sumar þá verð ég ritari á Heilsugæslustöðinni.... ég verð að gera það sama og Sigrún vinkona mín var að gera seinustu tvö eða þrjú sumur áður en hún dó... það var soltið skrítið að fara þangað, sá myndir af henni þar og ég verð að viðurkenna að það tók pínu á...það virðist vera öðruvísi að sjá myndirnar heima hjá sér heldur en hjá öðrum...mamma hennar vinnur líka þarna... en mig hlakkar bara rosalega til að byrja þarna....ég held að þetta verði frábært...
en matarplanið fór ALGJÖRLEGA í fokk....ég var bara í áfalli þegar ég kom heim....en FRÁBÆRI dagurinn endar sko EKKI þar.... þegar ég kom heim að þá steig ég á vigtina og viti menn....1,1 KG farið til viðbótar... 4,1 kg farið á 19 dögum....og ég er bara ÞOKKALEGA sátt við það... og ég finn líka bara rosalegan mun á mér...og nú finnst mér ekkert skemmtinlegra en að fara í gegnum fataskápinn minnGlottandi en jæja núna er þessi FRÁBÆRI dagur að kveldi kominn og ég er að pæla í að klára hann með stæl og segja hvað Elfar kærasti minn er yndislegur...frábær....fallegur og góður.....(hann bað mig um að skrifa eitthvað fallegt um sig...hahahaHlæjandi) en jæja ég kveð að sinni...þarf að vakna snemma til að fara í aukatíma í spænsku fyrir prófið á þriðjudaginn...
Hildur hamingjusama...
09. maí 2008 klukkan 23:35
Hildur Ýr Sigþórsdóttir
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Hildur Ýr Sigþórsdóttir
  • Staður: Akureyri
  • Atvinna: Leikskólaleiðbeinandi
  • Hjúskaparstaða: Trúlofuð

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan